Upplýsingar um viðburði á vegum nemendaráðs veturinn 2011-2012

8.-10. bekkur

Í kjölfar sameiningar Álftamýrarskóla og Hvassaleitisskóla hefur verið ákveðið að viðburðir sem skipulagðir eru af nemendafélögunum sem kosin voru sl. haust verði opnir öllum nemendum 8.-10. bekkjar í sameinuðum Háaleitisskóla. Nemendafélögin munu halda áfram sínu starfi fram á vor og ýmist skipuleggja viðburði í sameiningu eða sitt hvoru lagi en kosið verður í nýtt nemendaráð Háaleitisskóla haustið 2012. Á þessari síðu er áætlað að setja inn upplýsingar um viðburði sem í boði eru fyrir nemendur 8.-10. bekkjar Háaleitisskóla

 

Á döfinni

Diskó í Álftó. Gestir frá Eistlandi verða einnig á ballinu sem er frá 19:30-22:00. Frítt inn, sjoppa á staðnum.

 

Annað

HÁR-ball (ball fyrir nemendur í Hvassó - Álftó - Réttó) var haldið í Hvassó miðvikudaginn 25. apríl 19:30-22:00.

 

Árshátíð Háaleitisskóla var haldin fimmtudaginn 29. mars. Nemendur í Álftamýri og Hvassaleiti borðuðu í sínum skóla og voru með skemmtiatriði þar en svo var sameiginlegt ball frá kl. 21:00 í Álftamýri þar sem Friðrik Dór skemmti auk þess sem plötusnúður þeytti skífum langt frameftir kvöldi. Einstaklega vel heppnað kvöld :)

 

Bíókvöld var haldið í Álftamýri á hlaupársdaginn 29. febrúar. Vel var mætt á viðburðinn og heyrst hefur að þeir sem mættu hafi skemmt sér vel!

 

Miðvikudaginn 15. febrúar var FIFA-kvöld í Hvassaleiti. Hörð keppni var milli liða og barist um hvern bolta.

 

Miðvikudaginn 1. febrúar keppti lið Háaleitisskóla í spurningakeppni grunnskólanna og stóð liðið uppi sem sigurvegari í sínum riðli og er því komið áfram í keppninni.

 

Miðvikudaginn 25. janúar var haldið spilakvöld í Háaleitisskóla - Álftamýri. Ýmis spil voru á boðstólnum og sem dæmi má nefna: Varúlf, Alias, Þú veist, Scotland Yard, Fótboltaspil, Trivial pursuit o.m.fl. Vel var mætt á spilakvöldið og mikið hlegið og mikið gaman.

 

(eldri fréttir frá Álftamýrarskóla fyrir sameiningu við Hvassaleitisskóla)

Jólaball var haldið mánudaginn 19. des. Óborganleg skemmtiatriði litu dagsins ljós og dansað var fram eftir nóttu, a.m.k. til kl. 22:00.

 

Nemendaráð ákvað að sýna stuðnig í verki við fjólsóttasta val skólans, skákina. Anton í 10-KH afhenti skákkennara skólans skákklukku við hátíðlega athöfn á sal skólans við upphaf jólaskáktímans. Án vafa mikill fengur fyrir skáksnillinga framtíðarinnar sem leynast innan veggja skólans.

 

Nemendaráð hefur tekið að sér að vera með létta viðburði í hádeginu á föstudögum t.d. að sjá um tónlist í matsalnum, sýna þætti og stuttmyndir, halda keppnir meðal nemenda o.fl.

 

Ný húsgögn í nemendaherbergi. Búið að kaupa inn tvo stóla og til stendur að kaupa einn sófa til viðbótar.

 

Vinaball var haldið í skólanum í nóvember og er það mál manna að mikil stemning hafi verið á dansgólfinu sem var þettskipað allan tímann. Svo margir voru á dansgólfinu að kennarar komust ekki að til að taka snúning eins og þeir eru vanir að gera á böllum skólans!

 

Októberhátíð skólans fól í sér að halda bíókvöld. Boðið upp á gæðamyndefni og bíða nú allir spenntir eftir nýju bíókvöldi á nýju ári. Skyldi vera hægt að toppa það gamla?

 

Á föstudögum sér nemendaráð um að selja snúða/pizzur í frímínútum. Mmmmmm...

 

Kosningaball í september. Húsið ætlaði að rifna af skólanum þegar nýtt nemendaráð var kynnt en það skipa:

Ragnar 10-BÓ - Formaður

Sigrún 10-BÓ - Varaformaður

Steinar og Arnfinnur 10-BÓ

Anton og Vilborg 10-KH

Emil og Elías 9-AA

Andri og Thomas 9-RR

Birta og Arnór 8-GV

Birkir og Daníel 8-RG

 

 

 

Brynjar Marinó Ólafsson

Umsjónarmaður með félagsstarfi á unglingastigi - Álftamýri